Sáttamiðlun
Sáttaleiðin tekur að sér aðstoð við lausn ágreiningsmála með sáttamiðlun á vinnustöðum, í viðskiptadeilum eða öðrum ágreiningsmálum.
Ráðgjöf
Sáttaleiðin veitir ráðgjöf til fyrirtækja og einstaklinga við samningsgerð, lausn deilumála, innleiðingu sáttamiðlunar og annarra fyrirbyggjandi aðgerða.
Það er mér sönn ánægja að gefa Lilju Bjarnadóttur, sáttamiðlara mín bestu meðmæli. Hún hefur verið skoðunarmaður hjá Alvör ehf. frá stofnun fyrirtækisins 2009. Hún er skörp í hugsun, fljót að greina aðalatriði frá aukaatriðum, nákvæm og skipulögð.
Lilja vinnur vel í hóp, á auðvelt með að taka að sér að leiða verkefni og hefur hæfileika til að láta hvern og einn njóta sín
Ég sótti námskeið í sáttamiðlun hjá Sáttaleiðinni sem var mjög fróðlegt og gott. Námskeiðið veitti mér nýja sýn á lausnir ágreiningsmála minna skjólstæðinga, sem eru félagsmenn nokkurra stéttarfélaga innan BHM. Við löguðum verklag okkar í ágreiningsmálum þannig að nú er ávallt kannaður möguleikinn á því að fá óháðan sáttamiðlara til að aðstoða við að leysa úr ágreiningi.
Lilja kom til Orkusölunnar og hélt mjög áhugaverða kynningu um sáttamiðlun á vinnustöðum og fjallaði m.a. um fyrirbyggjandi aðgerðir til þess að koma í veg fyrir deilumál. Ég hef ávallt verið sannfærður um mikilvægi þess að grípa inn í ágreining sem fyrst og mæli eindregið með ráðgjöf Sáttaleiðarinnar í þeim efnum.
Ég hafði samband við Sáttaleiðina, þar sem ég vildi fá yfirferð á samningum hjá mínu fyrirtæki. Ávinningurinn var að nú hef ég heildstæða og skýra samninga, með eðlilegum viðmiðum fyrir alla málsaðila. Lilja var fagleg og tók verkefnin föstum tökum, en á sama tíma létt og skilningsrík og veitti persónulega þjónustu, þar sem virkilega var reynt að koma til móts við allar þarfir og greiða úr flækjum. Það kom líka skemmtilega á óvart hve vel Lilja fylgdi málinu eftir, alveg mörgum mánuðum seinna! Ég mæli hiklaust með Sáttaleiðinni fyrir þá sem vilja endurskoða samninga hjá sér.
Við hjá Kírópraktorstöðinni vorum mjög ánægð með námskeiðið Jákvæð samskipti á vinnustað. Þetta var akkúrat sem við þurftum til að þétta mannskapinn saman og fá alla til að vera með. Við vorum öll sammála um að fá að taka virkan þátt var gagnlegt og skemmtilegt og uppsetning á námskeiðinu var mjög góð. Lilja stóð sig æðislega vel sem fyrirlesari, vel til höfð, brosmild og með góða útgeislun. Hún fær okkar bestu meðmæli.
Takk fyrir okkur,
Starfsfólk Kírópraktorstöðvarinnar
Sáttaleiðin getur hjálpað við eftirfarandi aðstæður
Ráðlagning um næsta skref
- Deilur vegna samskiptaerfiðleika
- Ágreiningur innan fyrirtækja
- Ágreiningur milli samstarfsaðila
- Samskipti við viðskiptavini
- Yfirvofandi dómsmál
Það getur verið erfitt að taka fyrsta skrefið í að leysa ágreiningsmál og deilur sem eru orðnar að áhyggjuefni.
Sáttaleiðin býður upp á frítt 30 mínútna viðtal þar sem farið er yfir möguleika í stöðunni og hvort það hentar fyrir þig að fara Sáttaleiðina. Hafðu samband og við finnum tíma!
Fyrirlestrar og námskeið
Sáttaleiðin býður uppá úrval fyrirlestra á sviði sáttamiðlunar, samningatækni, um forvarnir ágreiningsmála og bætt samskipti.