fbpx

Dulinn kostnaður vegna ágreiningsmála

Flestum finnst óþægilegt að eiga í ágreiningi eða útistöðum við aðra. Þegar við lendum í aðstæðum sem okkur finnst óþægilegar er algengt að fyrstu viðbrögð okkar séu að forðast þær. Vandamálið er að ágreiningsmál eiga það til að verða erfiðari úrlausnar því lengur sem þau fá að vera óáreitt. Spennan eykst og oft stigmagnast ágreiningurinn því fólk verður harðara í eigin afstöðu. Þessir þættir geta gert það erfiðara að leysa úr ágreiningnum, auk þess sem kostnaðurinn sem fellur til við ágreining eykst.

Ef horft er á ágreiningsmál á vinnustað þá eru afleiðingarnar oft mun meiri en við gerum okkur grein fyrir. Beinn kostnaður af ágreiningsmálum er ekki alltaf svo augljós, nema kannski kostnaður við málaferli. En það er bara toppurinn á ísjakanum.

Óleyst ágreiningsmál fela einnig í sér kostnað í formi aukinnar starfsmannaveltu, tímasóunar og vinnutaps sem felur í sér minni framleiðni, auknar fjarvistir og veikindi, seinlegri ákvörðunartöku, mistaka sem rekja má til samskiptavanda og ekki síst áhrifanna sem spenna og leiðindi hafa á andrúmsloft á vinnustað og líðan starfsmanna.

Samkvæmt erlendri rannsókn frá 2008 þá eyðir hver starfsmaður að meðaltali 2,1 klst. á viku – eða um heilum degi í mánuði – í ágreining á vinnustað beint eða óbeint, þ.e. annaðhvort á starfsmaðurinn í ágreiningi sjálfur eða tími fer í að leysa úr ágreiningi milli samstarfsmanna.

Til þess að stemma stigu við þessu er nauðsynlegt að fyrirtæki geri sér grein fyrir mikilvægi þess að fólk sé þjálfað í því hvernig best sé að takast á við ágreining sem óhjákvæmilega mun koma upp þegar fólk með ólíkar skoðanir og gildi starfar saman. Vandamálið er ekki ágreiningurinn sem slíkur heldur neikvæðar afleiðingar sem ágreiningsmál hafa þegar ekki er gripið inn í með skipulögðum hætti. Hættum að stinga hausnum í sandinn og hjálpumst að við að fyrirbyggja ágreiningsmál og misskilning með því að hlúa betur að samskiptum á nýju ári.

 

Greinin birtist einnig á vísi.is þann 11. janúar 2017.

Leave a Comment

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Scroll to Top