Sáttaleiðin heldur í annað sinn BEZTA námskeið hjá Dokkunni:
Verkfæri sáttamiðlunnar!
Forvarnir og lausn ágreinings á vinnustað
Námskeiðið var haldið haustið 2016 við góðar undirtektir.
Hvenær: 17. mars 2017 kl. 9.00 – 12.00 – Skráning er hafin!
Af hverju þetta námskeið?
Allir þurfa á einhverjum tímapunkti að takast á við ágreining og deilur í starfi sínu. Deilur á vinnustað geta verið gífurlega kostnaðarsamar fyrir fyrirtæki og valdið miklum skaða meðal starfsfólks. Oft fær ágreiningur að stigmagnast alltof lengi vegna óvissu og stefnuleysis um hvernig best er að takast á við deilumálið. Sáttamiðlun er áhrifamikil og einföld leið til þess að leysa ágreinings- og deilumál á vinnustöðum.
Meginmarkmið námskeiðsins
Eitt meginmarkmið námskeiðsins er að hver þátttakandi verði flínkari í að leysa ágreining með verkfærum sáttamiðlunar áður en hann verður alvarlegur ásamt því að geta nýtt sér aðferðir sáttamiðlunar á öllum stigum ágreinings.
Umsagnir um námskeiðið:
- Mjög gott námskeið og gagnlegt, góð framsetning.
- Leiðbeinandinn stóð sig mjög vel og kom efninu vel til skila.
- Greinilegt að Lilja þekkir efnið mjög vel og er mjög áhugasöm um það.
- Lilja kom efninu mjög vel frá sér.
- Fræðandi og upplýsandi um hvernig hægt er að leysa ágreining sem getur komið upp á vinnustað.
Nánari upplýsingar um námskeiðið er að finna hér!
Skráðu þig núna og leggðu drög að friðsömu vori: Skráning fer fram hér!