Sáttaleiðin leggur mikla áherslu á fræðslu og forvarnir þegar kemur að deilumálum og hefur nú bætt við nýrri vinnustofu í hóp þeirra námskeiða og fyrirlestra sem þegar eru í boði. Vinnustofan kallast Lausnamiðuð samskipti og er markmið vinnustofunnar að kafa dýpra ofan í hvernig við komum í veg fyrir ágreiningsmál, misskilning og leiðindi sem geta orðið við samskipti á vinnustað eða heima fyrir. Að loknu námskeiðinu munu þátttakendur hafa:
- Öðlast skilning á því hvað felst í lausnamiðuðum samskiptum
 - Skilning á því hvernig er best að undirbúa samskipti þannig að þau verði lausnamiðuð
 - Lært leiðir til þess að ná betri árangri í samskiptum við erfiðar aðstæður
 - Verða meðvitaðri um leiðir til þess að sníða hjá algengum mistökum sem að leiða til ágreinings
 
Allar nánari upplýsingar um vinnustofuna er að finna hér: Lausnamiðuð samskipti.
Sérstök athygli er vakin á því að hægt er að sækja vinnustofuna sem einstaklingur eða sem sérstakt námskeið fyrir þinn hóp eða vinnustað.